Við bjóðum alla hjartanlega velkomna á kynningu á nýju leikskólakerfi sem hannað hefur verið með þarfir leikskólans í fyrirrúmi. Kerfið býður upp á fjölbreytta möguleika þar sem allar skráningar eru einfaldar og upplýsingar skýrar og aðgengilegar. Stjórnendur og kennarar fá góða yfirsýn og geta miðlað upplýsingum á fljótlegan hátt innan skólans og til heimilanna.
Fundurinn er öllum opinn og þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig hér að neðan.
Léttar veitingar í boði!
Dagsetning: 31. mars 2017
Tímasetning: 15:00-17:00
Staðsetning: Fellsmúli 26, 5. hæð (gengið inn frá Grensásvegi).
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 28. mars!