Samþætting bæði við Google og Office 365 er nú í boði fyrir þá sem eru farnir að nýta sér nýju kynslóðina af Mentor. Þar gefst tækifæri til að samþætta við Mentor dagatal, One Drive, Google Drive, tölvupóst og single-sign-on en þá þarf notandi eingöngu að skrá sig einu sinni inn og hefur þá aðgang að Mentor og Google eða Office 365.