Með því að nýta það sem tæknin hefur upp á að bjóða er hægt að létta starf kennara og nemenda til muna. Til að skoða þá möguleika sem standa til boða og sjá hvað hefur þegar verið gert bjóða Microsoft á Íslandi, Mentor og Ölduselsskóli til kynningarfundar í Ölduselsskóla þann 12. nóvember kl. 16.00.
Dagskrá fundarins:
- Gestir boðnir velkomnir. Heimir Fannar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi.
- Office 365 í Ölduselsskóla. Börkur Vigþórsson skólastjóri.
- OneNote í kennslustofunni. Karitas Eiðsdóttir kennari í Ölduselsskóla.
- Yammer og Delve í Office365. Ingvar Ágúst Ingvarsson frá Microsoft.
- Mentor og O365. Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri og Auðunn Ragnarsson CTO hjá Mentor.