Áhugasamir skólastjórnendur fengu kynningu á Mentor á BETT sýningunni.

Mikil þróun í skólamálum og bjartsýni ríkjandi

Við þökkum öllum þeim sem komu við hjá okkur á BETT í síðustu viku

Við kynntum nýja kynslóð af Mentor fyrir öllum þeim fjölda gesta sem kom við hjá okkur á BETT sýningunni í síðustu viku. Áhuginn var mikill og það er greinilegt að skólastarf er í mikilli þróun um alla Evrópu. 

Ef þinn skóli hefur áhuga á frekari kynningu á nýju kynslóðinni skaltu smella á kræjuna hér fyrir neðan. 

Heimsókn ráðherra og sendiherra

Mikill fjöldi gesta var viðstaddur þegar mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson og Þórður Ægir Óskarsson sendiherra Íslands í Bretlandi heimsóttu íslenska básinn á BETT.

Tilnefnd til BETT verðlauna 2016

Við erum stöðugt að breyta og bæta kerfið okkar þannig að það nýtist notendum sem allra best. Það er því mikil hvatning að vera tilnefnd til BETT verðlaunanna annað árið í röð.